Í dag ætlum við að fara með ykkur í ferðalag til Ashland sem er bær í Jackson County í Oregon. Fólksfjöldi þar er í kringum 21.000 manns og glæpatíðnin er alveg nokkuð há, en algengustu glæpirnir á svæðinu eru líkamsárásir og takið eftir..fasteignaglæpir!
En við ætlum að bjóða ykkur í heimsókn í byggingu sem er ein sú þekktasta á svæðinu og er það ekki bara vegna sögulegrar þýðingar hennar því staðurinn er þekktur fyrir það að þjóna viðskiptavinum sínum vel, jafnvel löngu eftir að þeir eru farnir yfir móðuna miklu….
Hótelið átti að fá nafnið Railroad House. Það innihélt hlöðu og kúabú og var opnað með hátíðarhöldum þann 20 september 1834 þar sem Davis seðlabankastjóri á þessum tíma var heiðursgestur…En húsið skipti um eigendur oft í gegnum tíðina og það skipti reglulega um nafn líka og á einhverjum tímapunkti í eigu manns sem hét Fournier fékk það nafnið John Stone´s Inn eftir upprunalega eigandanaum og það var líka Fournier sem varð fyrst var við draugaganginn….Annar harmleikur sem tengist ungri stúlku sem hét Mary Jane Smith en hún lendir í hræðilegu slysi fyrir utan Stone´s Public House árið 1862…Síðan er það sagan um kjólin. En á þessum nútímalega veitingastað liggur gamaldags kjóll frá 1862 uppá háalofti með blóðblettum í. Þetta er auðvitað kjóllinn hennar Mary Jane, en hann er ennþáuppá háalofti….Í febrúar 2003 ákveður eigandi staðarins, Matt að breyta nafninu í Stone´s Pucblic House vegna þess að þetta var ekki lengur gistiheimili eingöngu veitingastaður. En þrátt fyrir það þá er ennþá fólk á biðlista yfir að fá að heimsækja staðinn og gista þar….Stone’s Public House er klárlega reimt, starfsfólk, gestir og fólk sem gengur framhjá hefur orðið vart við drauga þarna…..
Takk fyrir að hlusta á Draugasögu vikunnar 👻
Ef þú hlustar á Apple Podcast endilega gefðu og stjörnur og/eða umsögn 🤩 Og ef þú hlustar á Spotify skaltu ýta á follow svo þú missir aldrei af nýjum draugasgöum👻
Viltu fleiri sögur? Kynntu þér áskriftarleiðirnar okkar inná Patreon HÉR 🙏🏽