80. Þáttur: Old Faithful INN

Við bjóðum ykkur velkomin í hinn eina og sanna Yellowstone þjóðgarðinn í Bandaríkjunum.
Þó náttúran og dýralífið sé stórkostlegt er þó geysistór bygging sem er ástæðan fyrir því að við erum mætt hingað. Ótímabær andlát eru svo mörg og hrottalegt morðmál skyggir á fegurðina sem blasir við okkur.

En í gegnum árin hafa sprottið upp draugasögur sem borist hafa manna á milli og það er alveg góð og gild ástæða fyrir því. Dauðsföllin hafa verið mörg, endalaust vesen hefur verið á byggingunni sjálfri og svo má ekki gleyma því eða þeim sem leynast undir þessu mannvirki.

Verið velkomin á Old Faithfull Inn.

 

 

Við erum mætt í Yellowstone þjóðgarðinn

 

Náttúran og dýralífið er engu líkt…

 

Yfir 500 hverir eru á svæðinu

 

Margir hafa látið lífið í og við hverina

 

Robert Reamer er maðurinn á bakvið arkitektúrinn á The Old Faithful Inn

 

Árið 1904 voru dyrnar opnaðar
Húsið er sérstakt en stórglæsilegt
Það er ekki furða að margir vildu strax bóka sér gistingu á þessum fallega stað
Old Faithful inn í dag

 

 

Andyrið/borðstofan er stór og opin

 

Fyrir miðju er þessi stóri arinn sem við nefnum í þættinum
Viðurinn einkennir skálann frá A til Ö

 

Nokkrir hafa látið lífið eftir árásir skógabjarna á svæðinu

Eitt af dularfullu ráðgátum hótelsins er morðið á ungri brúður

En lík hennar fannst hauslaust í baðkari brúðkaupssvítunar
Höfuðið fannst svo í krákuhreiðri skammt frá…

 

Ein aðal ástæðan fyrir reimleikanum er þó líklega vegna þess að húsnæðið er byggt ofan á gömlum víkingagrafreit.

 

En margir hafa líka drukknað í Yellowstone stöðuvatninu….

 

Við vonum að ykkur hafi þótt þátturinn okkar um Old Faithful Inn áhugaverður og hvetjum ykkur til að koma og kíkja á áskriftarleiðirnar sem eru í boði hjá okkur á www.patreon.com/draugasogur

Engin binding og þú getur byrjað að hlusta og horfa á hundruði þátta á myndbanda 🙂